
Stuttu eftir að við komum löbbuðum við fram hjá þessu sæta litla pósthúsi og ég hugsaði með mér að það væri nú frábært að hafa pósthús svona stutt frá húsinu okkar hérna á Spáni. Svo kom að því að ég ætlaði að skreppa með bréf í póst og við Ómar og Saga fengum okkur gönguferð að pósthúsinu þá komst ég að því að það vinnur engin þarna heldur eru þetta bara pósthólf. Krúttlegt hús samt sem áður :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli