laugardagur, 21. apríl 2007

En serio?

Þeir sem þekkja mig vel vita að ég elska að horfa á Greys. Nú horfi ég á Anatomía de Grey, ja á spænsku með enskum texta ,ótrúlega gaman. Maður venst því furðuvel að horfa á þættina döbbaða. Fyrsta orðið sem ég lærði var auðvitað ,en serio, enda segja Meredith, Izzie og hin það nánast í öðru hverju orði.

Engin ummæli: