miðvikudagur, 25. apríl 2007

Saga tekur til.

Saga er mjög spennt að fá frænkur sínar í heimsókn og er alltaf að spurja um þær.
Svo fór ég eitthvað að taka til a svölunum i morgun og hún var ekki lengi að koma og hjálpa til. ÞETTA VORU ENGIN SMÁ TILÞRIF...
Þannig að nú ert allt hreint og fínt þegar við fáum gesti.
Posted by Picasa
Posted by Picasa

Saga að undirbúa áður en Sif og Karen koma í heimsókn.

Posted by Picasa

laugardagur, 21. apríl 2007

En serio?

Þeir sem þekkja mig vel vita að ég elska að horfa á Greys. Nú horfi ég á Anatomía de Grey, ja á spænsku með enskum texta ,ótrúlega gaman. Maður venst því furðuvel að horfa á þættina döbbaða. Fyrsta orðið sem ég lærði var auðvitað ,en serio, enda segja Meredith, Izzie og hin það nánast í öðru hverju orði.

föstudagur, 20. apríl 2007

Mæðgur fóru á markað.

Á hverjum fimmtudegi er útimarkaður í Alhaurin el grande. Þar er selt grænmeti, ávextir, föt, blóm, töskur og fleira. Ég keypti mér sólgleraugu þar sem mín brotnuðu eftir að við komum og það er ómögulegt að vera sólgleraugnalaus hérna. Eftir markaðinn fórum við í garð rétt hjá þar sem voru leiktæki og Saga skemmti sér mjög vel. Þar hitti hún krakka en skildi auðvitað ekki hvað þau voru að segja en það kom ekki að sök. Við komum svo við í Mercadonna, sem er frábær matvöruverslun og keyptum jarðaber og fleira.
Posted by Picasa

Saga að athuga hvernig pabba gengur í vinnunni.

Posted by Picasa