sunnudagur, 25. nóvember 2007
Nú fara jólin að koma
Jæja þá fara jólin að koma og við erum búnar að vera duglegar að skrifa jólakort. Ég er nefnilega byrjuð að skrifa smá.
Heimilisfangið okkar er:
Hekla and Ómar
Casa la Pina
Postbox 69
Buzon 69
Pueblo Andaluz
Urbanlaziton Alhaurin Golf
Alhaurin el Grande
29120 Malaga
Spain.
Mjög mikilvægt númerið á postboxinu 69 þau eru ekki merkt með nöfnum eða heimilisföngum.
fimmtudagur, 15. nóvember 2007
Takk Amma og Afi Listhúsinu
Elsku amma og afi
Ástarþakkir fyrir að senda þessa skemmtilegu bók. Kjánar þessir negraskrákar...
Mamma og pabbi eru bæði búin að lesa bókina fyrir mig.
Knús og kossar
ykkar Saga.
Ástarþakkir fyrir að senda þessa skemmtilegu bók. Kjánar þessir negraskrákar...
Mamma og pabbi eru bæði búin að lesa bókina fyrir mig.
Knús og kossar
ykkar Saga.
Saga og Peppe
Peppe er hundur Sadie og Joe og Saga elskar að leika við hann. Hún talar alltaf ensku því hún er með það á hreinu að hundurinn skilur ekki íslensku.
þriðjudagur, 13. nóvember 2007
Takk fyrir að senda mér pakka
Elsku Amma og Afi, takk fyrir að senda mér svona sætan pakka. Ég er búin að horfa á Línu ansi oft og er að líma í bókina á fullu. Klúturinn er æði ,ég nota hann sem skikkju.
Kossar og knús
ykkar
Saga.
miðvikudagur, 7. nóvember 2007
Saga skrifar Sigrún.
Saga tók upp á að skrifa sjálf nafnið sitt, Solla og Amma Kalla en svo vildi hún líka skrifa Amma Sigrún en fannst erfitt að skrifa Sigrún.
Ég skrifaði fyrir hana Sigrún á blað og hún skrifaði svo sjálf Sigrún og hérna er útkoman. Klár stelpan okkar.
þriðjudagur, 6. nóvember 2007
mánudagur, 5. nóvember 2007
sunnudagur, 4. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)