Pabbi að setja mig í bílstólinn. Við erum á leiðinni til Fuengirola. Ég er í sparikjólnum mínum hvíta sem ég á eftir að sulla tómatsósu í reyndar en sem betur fer eru ekki myndir af því...hehe
Við fórum með ömmu og afa til Mijas ,sem er lítið fjallaþorp hérna ekki langt frá. Þetta er rosalega fallegt þorp sem hefur mikið gert út á ferðaþjónustu. Ég klappaði asna og svo fórum við í hestakerru. Amma keypti sér rosalega flottan leðurjakka, sem er spes fyrir skvísur. Við erum skvísur ég og amma. Auðvitað fengum við svo litla asna með okkur heim.
Ég er alltaf dugleg að hjálpa til við að versla inn. Og var það auðvitað líka þegar Amma og Afi voru hérna hjá mér.